Vöruflokkar: Allir flokkar, Bækur, Gestabækur, Skírn

Gestabók fyrir skírn - Sérpöntun

Látlaus og falleg gestabók fyrir skírn. Stærð 20x20 cm, bundin saman með satínborða. Á forsíðuna kemur nafn barnsins og fæðingardagur. Það má einnig breyta Skírnardagurinn minn og t.d. setja Nafnadagurinn minn. Sendu upplýsingar á hjartalag@hjartalag.is. Mikilvægt er að panta tímanlega þar sem forsíða er sérprentuð. 

Grár satínborði er standard en möguleiki er að velja annan lit. 

Forsíðan er með fellingu og innsíður eru 34. Fremst í bókinni er lítið ljóð, á næstu síðu er hægt að setja mynd og á þriðju síðu er pláss fyrir nokkrar upplýsingar. Þá eru næstu síður ætlaðar fyrir nöfn gestanna.  Ekki er hægt að breyta innihaldi bókar, hægt er þó að taka síður í burtu.
Innsíður eru prentaðar á 120 gr. Munken Lynx en forsíða og baksíða  á 250 gr. Gold Dust.

Prentað í Ásprent Akureyri

Litur á borða